28. desember 2008 klukkan 02:43
Mamma var ekki heima og pabbi var að passa mig. Ég var ekki nema eins og hálfs árs gömul.
Einhver hafði gefið mér tesett sem var eitt af uppáhalds leikföngunum mínum.
Pabbi sat inni í stofu í öðrum heimi við að lesa dagblöðin og bróðir minn var að dunda sér í rólegheitum.
Ég færði pabba te sem auðvitað var bara vatn. Eftir fjöldan allan af tebollum og helling af hrósi frá pabba þá kom mamma heim.
Pabbi sagði henni að bíða og kíkja og sjá hvað þetta væri sætt að sjá mig færa honum te, ég væri bara algjört krútt.
Mamma
beið og horfði þegar ég kom enn eina ferðina með tebolla handa pabba.
Hún horfði á hann drekka teið og þegar hann hafði klárað úr bollanum
varð henni á orði;
Gerir þú þér grein fyrir að eini staðurinn sem þetta litla barn getur komist í vatn er beint út klósettinu?
Sigurveig Petra
22. desember 2008 klukkan 23:21
Uppskrift að pólsku jólaglöggi ...njótið...
Pólskt jólaglögg.
1 líter vodka
1 rúsína.
Skreytt með greni.
-----------------------------------------------------
Svo syngja allir:
Skín í væna vínflösku,
og huggulega bjóra,
jólaglögg og eplasnafs,
allt það ætl´að þjóra.,
Dufla og daðra og leika mér
látum illa í desember
burt með sokk og skó
hér af víni er nóg.
Ó, hvað ég elska jólin,
von´eg hitti á stólinn.
Sigurveig Petra
06. desember 2008 klukkan 01:47
vá hvað ég var alveg tilbúin til að fara að blogga... en ekki lengur
hilsen
Sigurveig Petra
29. nóvember 2008 klukkan 15:01
Sigurveig Petra
28. nóvember 2008 klukkan 18:53
já sæll!!!
ekkert langt síðan ég bloggaði síðas... alveg eitthvað búið að gerast síðan þá
-
Ég er komin aftur á nagladekkin.. sem ég setti sjálf undir 
-
Ég er byrjuð í nýrri vinnu, hætti í Norðlenska 29. júlí og byrjaði á leikskólanum Kiðagili 18. ágúst, og líkar ekkert smá vel að vinna þarna bæði skemmtilegt fólk og skemmtilegir krakkar.
-
Hún Kayla okkar varð fyrir bíl í sumar og dó, það var soltil sorg hjá okkur Björgvin og líka mjög tómlegt eftir það og er stundum ennþá. Björgvin fer stundum ennþá að gráta þegar við erum að tala um hana 
-
Við mæðgin búum nú ein í íbúðinni okkar, sem er rosalega notalegt 
-
Hrafnhildur Lilja lést á alveg hræðilegan hátt núna í Sept, ég get ekki ímyndað mér þann sársauka sem fjölskylda og vinir hennar hafa þurft að ganga í gegnum síðust vikur og mánuði. Ég hugsa mikið til þeirra
-
Okkur Björgvin var boðið vestur á Strandir í lok ágúst með Lindu ofurhetju, Björgvin fékk að hjálpa til við að gera grunninn á nýja húsinu þeirra og fékk líka að vera með Munda í dráttarvélinni.
-
Við fórum í ferðalag eftir verslunarmannahelgina vestur á firði með Berglindi og Gústa, mömmu og pabba. Það var mjög gaman að koma þangað.
-
tók nokkur djömm í sumar og haust, ætli flest þeirra hafi ekki verið með Lindu hinni...
við endum yfirleitt alltaf bara tvær þegar við erum að fara á djammið saman hehe.
- Björgvin Máni litla barnið mitt er orðið 5 ára...

Þá er spuning hvort að ég haldi áfram að blogga hérna eitthvað áfram, kemur allt í ljós. Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili
hilsen
Sigurveig Petra
16. maí 2008 klukkan 21:19
var ótrúlega dugleg áðan og skipti um dekk á bílnum mínum alveg ALEIN (Berglind) ekki að það hafi verið neitt mál
hef gert ein, eða reyndar með smá hjálp frá Lindu ofurhetju, frá því 2006 þannig að þetta er ekkert mál
ég á svo yndislegt barn sem að elskar mig, segir mér oft að ég besta mamma í heimi og er alltaf að kyssa og knúsa mömmu sína,,, hversu heppin getur maður verið
Fór í rosalegt afmælispartý síðust helgi.... sæsje og kaaaaiiiii (Linda hin) Linda og Harpa voru með afmæli.. bollan var góð og bjórinn já ég held að það hafi verið gat á bjórnum mínum og bolluglasinu. Ég meira að segja söng í singstar og gjörsamlega skeit á mig haha. ég og Hanna Stella stungum af í bæinn með Áslaugu sem var svo elskuleg að sækja okkur, Hanna týndist (það var ekki ég sem að hvarf, aldrei
) ég fór til hinna stelpnanna á Vélsmiðjuna, það var gaman. Sáum mann sem var að "hözzla" konu hahaha (Linda) Löbbuðum svo aftur á Kaffi AK og dönsuðum. Fór "snemma" heim eða um rétt að verða 4...eftir að ég var búin að kaupa mér bát sem ég hitaði svo þegar ég kom heim og gjörsamlega gúffaði bókstaflega í mig haha
Vaknaði svo rosalega hress fyrst kl 10 og ekkert þunn, tók bara tvær hvítar til vara og lagði mig í hálftíma þar til að mamma hringdi (ennþá óþunn), þá stillti ég klukkuna á 11, sjæse hvað ég var þreytt
Var mætt til mömmu í hádeginu mjög hress(og óþunn)
Brunuðum á Óló city og þaðan til Sigló í fermingarveislu... þá var ég orðin ágæt af þreytunni, slapp alveg við allan slappleika nema þessa bölvans þreytu. Lagði mig svo hjá ömmu á meðan grísirnir Björgvin og Edda) fengu útrás eftir allann sykurinn um helgina. Ó hvað það var gott að leggjast í rúmið þegar við komum heim... lagði ekki einu sinni í það að ná í bílinn áður en ég fór heim.
Mánudagurinn var þétt skipaður af afmælisveislum, byrjuðum á því að rölta til mömmu eða reyndar kom hún hingað með drullusokk svo að ég gæti nú losað stífluna í baðkarinu.. og það tókst, en eftir það þá röltum við til mömmu með afmælisgjafirnar í poka. Fyrst var "barna"afmæli hjá Lindu hinni og heldur betur étið á sig gat og þaðan var haldið beint í annað barnaafmæli (alvöru barnaafmæli) til hennar Tönju Daggar og þar var líka gúffað í sig kökum og heitum réttum.
eitt hérna fyrir alla sanna vini:
...........Að vera þú sjálfur.
Ég elska þig ekki aðeins fyrir það sem þú ert,
heldur fyrir það sem ég er þegar ég er með þér.
Ég elska þig ekki aðeins fyrir það sem þú hefur gert
úr sjálfum þér, heldur fyrir það sem þú gerir úr mér.
Ég elska þig vegna þess að þú hefur gert meira en
nokkur trú hefði megnað til að ég yrði góð
og meira en nokkur örlög hefðu megnað
til að ég yrði ánægð.
Þú hefur gert það án þess að snerta,
án þess að segja orð eða gefa merki.
Þú hefur gert það með því að vera þú sjálfur.
Kannski er það einmitt þetta sem felst í að vera vinur.
(ók. höfundur)
Sigurveig Petra
29. apríl 2008 klukkan 00:38
... leiðinlega bensínverð, þoli ekki hátt bensínverð, þoli ekki hátt matarverð, þoli ekkert sem kostar trilljón og 30 krónur, þoli ekki hátt verð í sund, þoli ekki hátt verð í bíó (fer reyndar MJÖG sjaldan í bíó en samt), þoli ekki að það kostar næstum því að anda. Hvers á maður að gjalda þegar allt kostar trilljón, hvernig væri að þessi kallar sem eru með skrilljón á mánuði fari að gera eitthvað í þessu... ég reyndar hef ekkert vit á þessum málum en það hlítur að vera hægt að gera eitthvað til að laga þetta peninga ástand í landinu...
ég kannski fer að hlusta á soninn og flyt bara til útlanda... já það væri ljúft að búa í góðu landi þar sem að kemur samt vetur en sumrin eru lengri og heitari en hérna... hvar er hið fullkomna land???
ég er farin að leita...
Sigurveig Petra
10. apríl 2008 klukkan 19:32
Sigurveig Petra
07. apríl 2008 klukkan 14:01
nú held ég að ég sé hætt að fara í bíó
!!! ekki það að ég fari oft í bíó en þetta er allavega til þess að ég fer ennþá sjaldnar í bíó http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/04/07/verd_biomida_ad_haekka/
Sigurveig Petra
24. mars 2008 klukkan 21:25
Sigurveig Petra